Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008
31.3.2008 | 16:27
2 tikkerar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.3.2008 | 09:32
Eftir páska...
Ég þyngdist um kíló um páskana (reyndar var sá tími mánaðirins líka), en ég er með flensuna og er komin niður í 155,6 kg 11,4 kg farin og bmi farið úr 59,2 í 54,9. Reyndar ætla ég að taka meira mark á næstu viku, þegar ég er byrjuð á danska aftur og hætt með flensuna, lifi á vatni og seriósi þessa dagana, býst alveg eins við að þyngjast í næstu viku...
Ég náði páskamarkmiðinu, en ekki aukamarkmiðinu, ég er ekkert svekkt yfir því og ætla ekki að svekkja mig á því þar sem ég náði upphaflega markmiðinu svo að næsta markmið verður önnur 10 kg fyrir 20 maí, semsagt að ég verði komin niður í 147 kg þann 20 maí... og ég á bara 8,6 kg í það
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.3.2008 | 18:03
Vesen...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2008 | 17:57
10 kíló
er farin :c) var 157,2 í morgun ! og bmifarið úr 59,2 niður í 55,6 :c)
Er ekkert smá ánægð með það, er reyndar ekkert búin að vera rosalega dugleg á danska bróðurpart af síðustu viku, litla barnið mitt var veikt og ég þurfti að vera með það heima... ég þarf að hafa rútínu, það virkar best fyrir mig, en ég lagðist svosem ekkert í sukk, þar sem ég komst ekkert að versla neitt rusl haha.
Ég var búin að setja markmið í janúar byrjun að missa 10 kg fyrir páska og ég er búin að ná því, svo að ég ákvað að setja aukamarkmið 2 kg til viðbótar fyrir páska, ég þarf allavega að spíta vel í lófana ef ég ætla að ná því.
Ég finn mikinn mun á mér að hafa mist 10 kg, finn mestan muninn á fótunum og þá sértaklega hnjánum, ég réði eiginlega ekki við það að labba upp tröppurnar hjá mér, þurfti að fara skref fyrir skref, en nú get ég labbað venjulega og án þess að finna til í hnjánum.
Mér til mikillar skelfingar gerði ég þá uppgötvun um daginn að miða við hæð mína og þyngd þá munaði bara einu kílói á að það væri 1 kg á hvern sentimeter en sem betur fer er það að lagfærast...
læt þetta duga þessa vikuna
<a href="http://www.TickerFactory.com/weight-loss/wkC7BOV/">
<img border="0" src="http://tickers.TickerFactory.com/ezt/t/wkC7BOV/weight.png"></a>
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2008 | 21:21
flutningur
Ákað að skipta um blog þar sem mér fannst blogcentral ekki alveg era að gera sig :c/
ar búin að setja inn 2 færslur þar, og ætla bara að kópera þær hér inn
Er ekki hætt...
Það er mikið búið að gerast hjá mér síðan ég skrifaði síðast, skilnaðarkrísa og fleira, er reyndar ekki að skilja sem stendur því við ákváðum að vinna úr okkar málum.Allavega þá er ég byrjuð á danska, og það gengur svona sæmilega, eins og kanski sést á tikkernum hérna fyrir neðan, vigtaðist 158,3 í morgun og ég er bara sátt við það, væri svosem alveg til í að þetta væri meira, en þetta er samt gott og ætla bara að vera ánægð með það. Ég gleymdi að taka það fram í síðustu færslu að fyrir jól var ég 167 kg svo að ég er bara í góðum gír og vonast ég til að ná allavega 10 kg áfanganum fyrir páska, á 1,7 kg í það.
Ég þyrfti helst að setja það inn í prógramið að blogga eftir hverja viktun, ætla að reyna að koma því inn, ágætt að eiga eitthvað um hvernig mér líður í kringum þetta. Mér hefur svosem ekkert liðið vel útaf þessu sambandsveseni, en vanlíðanin vegna þess hlýtur að enda einhvertíman.
Þá á að takast á við bumbupúkann
Jamm, nú skal það gerast. Ég er 164 kíló og 168 cm og með bmi 58,1 !!, og það er nokkuð ljóst að ég þarf að létta mig áður en ég ét mig í gröfina
Ég ætla að taka þetta í áföngum, stefnan er 10 kg fyrir páska, og það gerir kíló á viku, sem er alveg hægt.
Ég er byrjuð að hreyfa mig, fer í göngutúra og er með svona stafi, alveg ótrúlegt hvað þessi stafir gera meira úr göngutúrnum! miklu meiri hreyfing en í venjulegum göngutúr
Svo ætla ég að taka mataræðið í gegn, og fyrsta skrefið er einfaldlega að borða minna! minka sykurát og hætta að drekka gos. drekka meira af vatni.
Ég ætla að blogga mig í gegnum þetta, mér er alveg sama þó enginn fylgist með, er aðalega að gera þetta fyrir sjálfa mig
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)